fimmtudagur 14.október 2010
Flýtilyklar
Kennarar
Ţóra Gísladóttir
Þóra er fædd í Vestmannaeyjum þann 1 september 1976 og hóf nám í Tónskóla Sigursveins 11 ára gömul á þverflautu o.fl. Alla sína tíð hefur hún verið mjög virk í tónlistar og kórastarfi og unnið mikið með börnum og unglingum. Á 19 aldursári fluttist hún til Bandaríkjanna þar sem hún fékk starfsþjálfun í tónlistarstjórnun undir handleiðslu blökkusöngvarans Lindsay Seals sem lagði áherslu á gospel, popp/rokk & fönk söngnálgun. Árin 1996-2000 starfaði Þóra sem aðstoðartónlistarstjóri í eitt þúsund manna kirkju í Flórída fylki og sem tónlistarstjóri í Michigan fylki.Þegar hún kom heim til Íslands kláraði hún 8 stig á þverflautu, fór í kennaradeild Tónlistarskólans í RVK og útskrifaðist árið 2004 sem tónlistarkennari með B. Mus gráðu úr blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Meðfram náminu kenndi hún á þverflautu í Tónskóla DoReMí og var tónlistarstjórnandi unglingahljómsveitar & sönghóps Fíladelfíu. Á þessum tíma var hún einnig í jazzdeild Tónlistarskóla FÍH og kláraði 6 stig í jazzsöng m.a. undir leiðsögn, Kristjönu Stefánsd.
Á árunum 2000-2008 starfaði Þóra sem tónlistarkennari á þverflautu og saxófón í Nýja Tónlistarskólanum, Tónskóla Sigursveins og Skólahljómsveit Austurbæjar.
Hún var stjórnandi, útsetjari og undirspilari Gospelkórs Jóns Vídalíns og Gospelkórs Árbæjarkirkju. Auk þess stjórnaði hún kórastarfi unglinga sem setti á svið söngleik um Jósef þar sem hún samdi og útsetti megnið af lögunum og textunum.
Þóra sótti fyrsta Masterclass Catherine Sadolin á Íslandi árið 2004, síðan þá hefur hún tileinkað sér Sadolin söngtæknina. Hún lauk einnig lagasmíða og pro-tools upptökunámskeiði í Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna.
Hún hefur oft tekið þátt í undankeppni Evróvisjón bæði sem aðalflytjandi og í bakröddum. Einnig hefur hún komið fram sem einsöngvari á fjölda tónleika m.a. með Sálinni hans Jóns míns, Gospelkór Reykjavíkur og á Jólatónleikunum Fíladelfíu.
Hefur útsett og sungið bakraddir fyrir marga listamenn, t.d. Sniglabandið, Sálina og á Jólagestum Björgvins. Var félagi í Gospelkór Reykjavíkur sem kom fram með ýmsu listafólki m.a. Carolu.
Haustið 2008 gaf hún út frumsamið efni, geisladiskinn Aldrei áður verið elskuð svona heitt.
Síðastliðin ár hefur móðurhlutverkið átt hug hennar allan en hún á tvær ungar dætur. Hljóðfærin sem Þóra spilar mest á fyrir utan sönginn eru píanó, þverflauta og kassagítar.











