fimmtudagur 14.október 2010
Flýtilyklar
Kennarar
Sesselja
Sesselja eða Sessý, eins og hún er oftast
kölluð, er fædd 29. júní 1977.Hún hefur starfað sem söngkona í rúman áratug og tekið að sér fjölbreytt
verkefni. Hún steig sín fyrstu spor á sviði í Verzlunarskólanum, í
söngvakeppninni Verzlóvæl og söngleiknum Mambo Kings (1996-1998). Eftir
stúdent var hún um tíma í hljómsveitinni Leynifjelagið (1999-2000) sem kom
fram víða um land.
Haustið 2003 tók Sessý þátt í fyrstu Idol Stjörnuleitinni sem sýnd var á
Stöð 2. Sessý komst í úrslit og söng lagið Vetrarsól inn á Idol diskinn. Eftir
Stjörnuleitina eignaðist hún sitt fyrsta barn en fljótlega var hún komin
aftur á svið í dúettinum Sessý & Sjonni. Haustið 2006 gaf Sena út diskinn Móðir og barn, sem var samstarfsverkefni hennar og Friðriks Karlssonar.
Sessý stundar nú nám í Háskóla Íslands á grunnskólakennarabraut þar sem
hún einbeitir sér að tónmennt. Hún hefur starfað í Söngskóla Maríu Bjarkar
í tæp sex ár.











