fimmtudagur 14.október 2010
Flýtilyklar
Kennarar
Sara Dís
Sara Dís
Hjaltested byrjaði söngferil sinn
ung að aldri enda alin upp í hljóðveri, en hun var aðeins 5 ára þegar hun söng dúett með móður sinni, Maríu Björk,
á sína fyrstu plötu “Barnajól” og hljómar það tónlistarmyndband enn þann dag í dag á hverjum jólum. Hafa
þær mæðgur sungið mikið saman í gegnum tíðina.
9 ára gömul var hún valin úr hópi barna til að fara
sem fulltrúi Íslands í alþjóðlega söngvakeppni barna sem haldin er á Ítalíu og komst hún í úrslit.
Nokkrar
plötur fylgdu í kjöllfarið og má helst nefna Barnabros, Barnabros 2 og Jólaperlur. Hún söng í uppfærslu FG í Litlu
hryllingsbúðinni og Moulin Rouge í Lofkastalanum. Sara er búin með 3. stig í píanónámi og 6.stig í tónfræði.
Sara er sálfræðinemi við Háskóla Íslands og stefnir á barnasálfræði enda mikil barnakona og hefur hún unnið mikið
með einhverfum börnum og börnum með þroska- og hreyfihömlun.
Sara Dís á eitt barn og hefur kennt við skólann með hléum í
6 ár.











