fimmtudagur 14.október 2010
Flýtilyklar
Kennarar
Regína Ósk
Regína Ósk er fædd
21.desember 1977. Hún hefur verið starfandi söngkona í mörg ár. Hún hefur lært í Söngskóla Reykjavíkur, FÍH, verið
í einkatímum og hefur lokið eins árs námskeiði í Complete Vocal Technic. Hún hefur tekið þátt í ýmis konar verkefnum
t.d lék hún í Litlu hryllingsbúðinni og Kysstu mig Kata sem voru sett upp í Borgarleikhúsinu 1998-2000. Einnig var hún í Hárinu sem
sett var upp í Austurbæ 2004. Hún hefur starfað með ýmsum söngvurum og hljóðfæraleikurum. s.s Björgvini Halldórs, Stefáni
Hilmars, Jóni Ólafs, Barða Jóhanns og Karli Olgeirssyni ásamt því að hafa verið Frostrós fjórum sinnum og ferðast um
landið með þeim. Hún hefur tekið þátt í ýmsum söngskemmtunum á Broadway, Háskólabíói, Salnum ofl.
Síðastliðið vor setti hún einmitt upp söngkemmtun í Salnum, Kópavogi til heiðurs " The Carpenters" sem gekk mjög vel og verður framhald
á.Hún hefur sungið inná tugi platna bæði sem bakrödd og sóló. Hún hefur gefið út þrjár sólóplötur: "Regína Ósk" 2005, "Í djúpum dal" 2006 og "Ef væri ég..." 2007 ,eina með Eurobandinu "This is my life" 2008 og svo gaf hún út sína fyrstu jólaplötu núna fyrir síðustu jól sem heitir "Regína Ósk-um gleðileg jól". Hún hefur fjórum sinnum farið fyrir hönd Íslands í Eurovision, þrisvar sem bakrödd (2001,2003 og 2005) og 2008 með Eurobandinu. Hún og Friðrik Ómar hafa starfað mikið saman á s.l þremur árum og eru enn að. Þau spila út um allar trissur með Eurobandinu bæði hér heima og í Evrópu. Þar spila þau og syngja Eurovision lög sem að allir vilja heyra. Regína á tvær dætur og hefur verið að kenna í Söngskólanum í 8 ár.











