fimmtudagur 14.október 2010
Flýtilyklar
Kennarar
Guđrún Árný
Guðrún Árný fæddist í
Reykjavík, 23. mars 1982. Hún byrjaði að læra á píanó 7 ára gömul og var í námi í 15 ár. Hún
sigraði nokkrar karokekeppnir sem unglingur og einnig Söngvakeppni Framhaldsskólanna 1999. Með menntaskólanum tók hún að starfa sem söngkona og
tók hún þátt í minnst 6 sýningum á Broadway á 4 árum undir stjórn Gunnars Þórðarsonar. Hún fór
einnig með Gunnari Þórðar um landið með hans eigin konsert af lögum ásamt söngvurunum Hjördísi Elínu, Kristjáni
Gíslasyni og fleiri afburða listamönnum. Hún söng með Páli Rósinkransi í Landslagskeppni Bylgjunnar árið 2000 og hefur sungið
í undankeppnum Eurovision 2001, 2003 og svo árið 2006 með lagið Andvaka e. Trausta Bjarnason. Jólin 2002, 03,04, og 2005, 2008 og 2011 söng Guðrún
Árný með Frostrósum á jólatónleikum. Þá komu jafnframt út Jóla-geisladiskar og dvd í tengslum við
það.
Guðrún Árný gaf út plötuna "Eilíft augnablik"
þar sem hún m.a. samdi lög og söng við eigin undirleik.
Árið 2007 útskrifaðist Guðrún Árný
frá Listaháskóla Íslands með BA gráðu í tónlistar- og kennslufræðum. Vorið 2011 kláraði hún svo Diploma
nám í Listkennslu.
Hún hefur kennt hjá Söngskóla Maríu í
mörg ár, verið með söngtíma ( einkatíma og hóptíma) rytmatíma og píanótíma. Einnig sér hún
um yngstu börnin, forskólahópana 3ja til 5 ára :)
Guðrún
Árný starfar sem tónlistarkennari í Álftanesskóla, kennir
einkatíma á píanó heima við auk þess sem hún starfar sem söngkona.











