Kennarar

Söngnámskeiđ fyrir alla aldurshópa í Söngskóla Maríu Bjarkar

  • Söngskólinn

    Thumbnail
    • Kynningarmyndband
    • 27/09/2010 17:33
  • Kennarar

    Thumbnail
    • Allir kennarar
    • 22/09/2010 16:44
  • Nemendur

    Thumbnail
    • Söngvaborg Skýin
    • 25/10/2010 14:01

Kennarar


Guđbjörg

Segja má að söngferill Guðbjargar hafi byrjað eftir að hún fluttist til Þýskalands, þar sem hún m.a. sótti tíma í einum virtasta leiklistarskóla Hamborgar og fékk þar góð ummæli. Þar söng hún í hljómsveitinni Bastre Muba sem fékk góða dóma fyrir diskinn sinn "In einem fremden Land". Undir lok veru sinnar í Þýskalandi var Guðbjörg í samstarfi við The Thorntons, sem störfuðu undir merkjum Polygram í Þýskalandi, en með þeim söng hún m.a. "Heaven" sem Diana Warwick keypti af þeim bræðrum til flutnings eftir að hafa heyrt demo flutt af Guðbjörgu. Til gamans má geta þess að Guðbjörg tók þátt í nokkrum karaókíkeppnum víða í Þýskalandi og vann þær allar. Hún söng inn á teiknimyndirnar "Prince of Egypt", þar sem hún söng hlutverk móður Jósefs, "Pokahontas 2" og með KK og Ellen í "Bugs Life". Söng á Broadway í Primadonnu- og Abba sýningunum og sýningunni Laugardagskvöld á Gili með Ragga Bjarna og Álftagerðisbræðrum við góðar undirtektir gagnrýnenda á öllum sýningunum. Guðbjörg hefur komið víða við á sínum ferli, því auk þess að hafa tekið þátt í því sem að framan er talið hefur Guðbjörg sungið í sjónvarpi, m.a. í 75 ára afmælisþætti RÚV, einsöng og dúett með Ragga Bjarna, að ógleymdri Evróvisjón keppninni í Svíþjóð 2000. Guðbjörg hefur einnig sungið bakraddir í nokkrum lögum í úrslitum í Evróvision síðastliðin ár.

Guðbjörg er ein af 3 söngkonum sem kalla sig Prímadonnur og hefur sá hópur sungið í fjöldamörg ár fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, og þær sérhæfa sig í tónlist ABBA við góðan orðstír. Ekki má gleyma að minnast á söng Guðbjargar í útvarps- og sjónvarpsauglýsingum og í brúðkaupum í mörgum af helstu kirkjum landsins. Guðbjörg hefur sungið á Frostrósartónleikunum síðastliðin 3 ár í Gospelkór  Íslands, en í honum eru 8 söngvarar og margir af helstu söngvurum landsins. Guðbjörg er í hljómsveit sem heitir einfaldlega Guðbjörg og BANDIÐ og í bandinu eru frábærir tónlistarmenn, þar má nefna tvo meðlimi Sálarinnar, Jóhann Hjörleifsson trommuleikara og Friðrik Sturluson, og svo er Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari. Bandið heldur litla tónleika af og til á t.d. Rósenberg, Spot og víðar.

Guðbjörg er búin að kenna í söngskólanum á þriðja ár við góðan orðstír en er þessa önnina í fæðingarleyfi

Hafa samband

588 1111


Myndir

Myndbönd

Thumbnail
  • Guđbjörg
  • 12/11/2010 01:10

Svćđi

headerheader
Stefna ehf Hugbúnađarhús - Moya